Þörf eða Þyrnirósarsvefn?

Fjöldi manns hefur unnið sig frá andlegri vanlíðan án nokkurra geðdeyfðarlyfja. Það er alltaf mikilvægt að gefa sér tíma og leitast við að komast að rótum vandans, áður en gripið er til geðlyfja.

Andleg vanlíðan er ekki endilega af geðrænum toga

Erlendar rannsóknir gefa til kynna að það sé tilhneiging heilbrigðisfagfólks að sjúkdómsgera tilfinningalega vanlíðan kvenna sem oft er fremur af félagslegum rótum runnin en geðrænum og bjóða þunglyndislyf sem fyrsta og eina meðferðarúrræðið. Notkun þunglyndislyfja er meiri meðal kvenna en karla á Íslandi og fengu konur 74% fleiri dagskammta en karlar í heild á árinu 2001. Konur hafa meiri þörf en karlar til að tala um tilfinningalega líðan sína; samviskubit, áföll í bernsku, innibyrgða reiði og sorg, sem þær skynja undirniðri að þarf að koma upp á yfirborðið svo að hægt sé að sigrast á depurðunni, kvíðanum og angistinni. Karlar eru aftur á móti fremur uppteknir af erfiðleikum á líðandi stund, til dæmis í samskiptum við maka, börn og vinnufélaga og eru sannfærðir um að eitthvað í umhverfinu eða ytri aðstæður valdi þeim vanlíðan. Þeir eru ekki eins ginkeyptir fyrir geðdeyfðarlyfjum og konur, en virðast gjarnari en þær á að fá útrás fyrir reiði og sorg í óhóflegri áfengisdrykkju. Lestu afganginn »

Þunglyndislyfi eru engin lækning (grein úr Vikunni)

Viðtal í Vikunni þann 9 nóvember 2004

Búum við yfir einhverri innri orku sem hægt er að virkja okkur sjálfum og öðrum til góðs? Bergþóra Reynisdóttir geðhjúkrunarfræðingur trúir að svo sé og það sem meira er hún hefur sannreynt það í eigin lífi. Nýlega ákvað hún að setja saman helgarnámskeið fyrir konur þar sem hún og hjálparkona hennar, Katrín Jónsdóttir, svæða- og viðbragðsfræðingur, blása konum í brjóst seiglu og styrk.

Námskeiðið heitir Innri friður – Innri styrkur og er haldið að Fögruhlíð í Fljótshlíð þar sem Bergþóra og kærasti hennar hafa verið í óðaönn við að laga húsið og koma upp aðstöðu til námskeiðahalds. Bergþóra hefur starfað innan geðheilbrigðiskerfisins í rúm tuttugu ár og lýsti því eitt sinn yfir í heyranda hljóði að hún ætlaði sér að taka þátt í að breyta kerfinu þannig að það félli betur að þörfum nútímakvenna.

Lestu afganginn »

Kraftur Náttúrunnar

Náttúran er full af orku og er tilbúin að gefa okkur hlutdeild í þeim krafti sem hún býr yfir, ef við sjálfar erum tilbúnar að leita eftir honum. Það sýndi sig á haustnámskeiðunum að kraftur náttúrunnar í Fljótshlíðinni er einstakur og var þess vegna lögð áhersla á frekari útivist í náttúrunni og unnið með hluta af námsefninu þar. Veðurfarið ver einstakt, sól og blíða og komst hitinn upp í 17 stig þegar best lét á námskeiðunum. Konurnar nutu þess að tengjast krafti náttúrunnar ennfrekar og sem fyrr þá halda konurnar heim léttar í lund, brosandi og það besta er að þær eru lausar við áhyggjur!

Viðtal við Lilju Sigurðardóttur (úr Vikunni)

Viðtal í Vikunni 33 tbl. 67 árg., 24 ágúst, 2005

„Lífið fýkur ekki lengur fram hjá mér“

Lilja Sigurðardóttir hefur barist við þunglyndi í átta ár. Líðan hennar hefur verið sveiflukennd þennan tíma en á stundum verið svo slæm að helst hafi hún viljað binda enda á líf sitt. *Í vetur kynntist Lilja Bergþóru Reynisdóttur geðhjúkrunarfræðingi og með hjálp hennar tekist að fá jákvæða sýn á lífið og og líta bjartari augum til framtíðar, auk þess sem lyfjaskammturinn hefur minnkað.*

Lilja er ung að árum og ætti samkvæmt hugmyndum samfélagsins að vera að lifa blómaskeið lífs síns og sín bestu ár. Hvenær byrjaði hún fyrst að finna fyrir þunglyndi? Lestu afganginn »

Um fjallgöngur og verki

Það voru átta vaskar konur sem komu á námskeið í Fögruhlíð þann 12 -14 maí og aldrei hefur aldursbilið verið jafn breytt, en þær voru á aldrinum frá 16 ára og sú elsta í hópnum var 57 ára. Það hefur sýnt sig að aldur skiptir ekki máli þar sem konur koma saman og sú yngsta í hópnum hafði orð á því að konurnar hefðu gefið sér ómældan stuðning og hvatningu. Á laugardagsmorgninum var farið í fjallgöngu upp á Ingimundarheiði og gróflega áætlað gengum við 300 metra, allt á fótinn og útsýnið sveik okkur ekki enda var veðrið hreint frábært. Tvær kvennanna kvörtuðu um verki í upphafi göngunnar, önnur var með magaverk en hin konan kvartaði um þrálátan verk í mjöðmum. Þær voru eindregið hvattar til að hefja gönguna enda gætu þær sest niður og hvílt sig ef allt færi á hinn versta veg. Á toppinn komumst við allar og þá beindist athyglin að verkjuðu konunum sem lýstu því yfir að þær væru orðnar verkjalausar. Dregin var sú ályktun að fjallgöngur væru allra meina bót … svona í hófi.

Um konur og kærleika

Þær komu úr öllum áttum, á svipuðum aldri og allar höfðu þær tekist á við verkefni lífsins, sem voru bæði stór og smá og ekki síst fjölþætt. Lífið er stöðugt að færa okkur verkefni og þess vegna er mikilvægt að vinna að þeim með lausnarmiðaðri sýn … það auðveldar úrvinnsluna. Að þessu sinni fór sjálft námskeiðið fram í sumarhúsi kvenfélags Fljótshlíðar, í skógi vöxnu umhverfi innar í Fljótshlíðinni, en gisting og málsverðir voru sem fyrr í Fögruhlíð. Vinnan á námskeiðinu þessa helgi einkenndist af samkennd hópsins og miklum kærleika sem konurnar umvöfðu sjálfar sig og hinar í hópnum og þær voru ákveðnar í því að gera það sama framvegis gagnvart öðru fólki. Konur eru eðlislægt umhyggjusamar og kærleiksríkar manneskjur og svo fúsar að deila því með öðrum, en þessi eiginleiki kvenna verður seint metinn þeim til tekna. Með hugarverkfærin kærleikann og fyrirgefninguna í farteskinu erum við betri manneskjur, öll samskipti við annað fólk verða auðveldari og ánægjulegri og lífið sjálft farsælla.

Hláturinn bætir lífið

Þær voru brosmildar konurnar sem komu á níunda námskeiðið í Fögruhlíð helgina 10-12 mars síðastliðinn. Alveg óvart þá gengum við 7,7 km fyrsta daginn en það reyndist góð byrjun á helginni. Konurnar voru á aldrinum frá 18 ára til 48 ára og sem fyrr þá er aldurinn svo afstæður og alltaf ná hóparnir mjög vel saman og eru orðnar hinar bestu vinkonur við brottför úr Fögruhlíð. Kvöldvakan á laugardeginum vakti mikla lukku og kvartað var undan hlátrasköllum frá næstu bæjum. Sigríður ráðskona galdraði fram gómsætan mat af hreinni snilld og er það stór þáttur í því að bæta andlega sem og líkamlega líðan. Það snjóaði á nóttunni en var sól og blíða á daginn … hvílík fegurð í Hlíðinni þessa helgi.

Innri friður - Innri styrkur

Hvað þarf til að viðhalda andlegu jafnvægi?

Hreyfing, hvíld, hollt mataræði gott sjálfstraust og áreitastjórnun eru grundvallarþættir í andlegri vellíðan. Til að ná og andlegu jafnvægi þarf fólk að rækta ,,sjálfið” daglega og vera sér meðvitað um öll þau ytri áreiti sem hafa mikil áhrif á sálarlífið, meðal annars samskipti við aðra. Jákvæð hugsun, gleði og bjartsýni eru besta vítamínsprautan.

Lestu afganginn »

Hlíðarhjalli 41A - 200 Kópavogi
Sími: 863 6669
Netfang: liljan@liljan.is